Shopping security
Appelsínu ilmkjarnaolían er yndislega frískandi og upplífgandi olía sem allir geta notað og notið. Hana má nota í nuddolíu, í gufu, í baðið, í heimilisþrifin og í þvottinn svo fátt eitt sé nefnt.
Olíunni má blanda í sápur, hársápur, aðrar olíur eða krem til að fá frískandi ilminn. Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni.
Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með þvottaskeljunum frá Living naturally sem við hjá EKohúsinu notum reglulega fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt þvottaskeljunum.
Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).
Innihald 10 ml.


Olían kemur í lítilli glerflösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.
Ships within 48 hours · Estimated delivery Jun 24 - Jun 29
US$40
Get nowSign up to your membership to get coupons up to
15%
Get nowOpportunity to enjoy order discount up to 15% off
Top-Converting Item to Boost Your Average Order